13 November 2006

Myndir frá Svalamótinu á Akranesi

Hér koma nokkrar myndir frá mótinu á Akranesi um helgina. Birtan þarna inni og vankunnátta mín á myndavélina mína varð til þess að allar myndirnar sem ég tók inni í höllinni voru dökkar og hreyfðar. Algjört klúður.

Einhver gleymdi dökkbláu hummel buxunum sínum í klefanum á Akranesi. Eigandinn getur sótt þær hjá mér á Ásvöllum. Öllu verra var að einhverjar tvær stelpur gleymdu að skila mér keppnistreyjunum. Þessar treyjur vill ég fá sem FYRST!

Undirbúningur í fullum gangi -og Matthildur að troða í sig mat rétt fyrir leik! :)

Hildur og Matthildur ... ennþá að borða!

Anna Lára varð fyrir líkamsárás þegar veggur á Ásvöllum réðst á hana og gat því ekki keppt með okkur en verður komin á fullt innan skamms. Rétt upp hendi - hvor er "vondi" tvíburinn?

Birgitta tekur miðju og María, Fanney og Halldóra fylgjast grannt með

Sonja, Sesselja, Heba, Birgitta og Bekri fyrir framan Akraneshöllina

1 comment:

Anonymous said...

Haukar eru einfaldlega bara bestir!!!!!! 0=D