Á þriðjudaginn næstkomandi, 24.október, verður haldin "deildakeppni" milli 6.flokks kvenna í handbolta og 5.flokks kvenna í fótbolta (báðir flokkar eru '95 og 96' módel).
Keppt verður í ýmsum greinum innanhúss á Ásvöllum klukkan 16:00-17:00 og frá 17:00-18:00 verður keppt úti á gervigrasinu á æfingatímanum okkar. Þess vegna verðar allar að koma með bæði innanhússbúnað og utanhússbúnað. Ekki væri vitlaust að taka með sér létt nesti til að narta í og vatnsbrúsa, þar sem æfingin verður tvöfalt lengri en venjulega.
Sem sagt, næsta þriðjudag klukkan 16:00 verða allar að vera tilbúnar í Ásvallarhúsinu í innanhússfötum.
Kristján Ómar
18 October 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment