26 September 2006

Bloggbrjálæðið byrjað!

Sæl verið þið stelpur, foreldrar og aðrir sem á einhvern hátt tengjast 5.flokki kvenna hjá Haukum í knattspyrnu.
Hér á þessari síðu verður ávallt að finna allar upplýsingar sem þið þurfið á að halda: æfingatímar, tímasetningar foreldrafunda, hvenær og hvert á að mæta, og svo framvegis.

Sú breyting á sér stað núna um mánaðarmótin að æfingum fjölgar um eina, eins og ávallt stóð til að gera, og tíminn á þriðjudagsæfingunum breytist svo að sú æfing skarist ekki á við handboltaæfingar fyrir jafnaldra hjá Haukum.

Æfingar eru því á eftirtöldum tímum:
Mánudagar - Risinn - 17:00-18:00 (frá með 2.október)
Þriðjudagar - Ásvellir - 17:00-18:00 (frá með 3.október)
Fimmtudagar - Ásvellir - 16:00-17:00
Föstudagar - Ásvellir - 16:00-17:00


Kv.
Kristján Ómar

P.S
Ef einhverjir foreldrar vilja fá aðgang að þessari síðu, til að koma skilaboðum til hópsins, hafið þá endilega samband við mig: kristjan.omar "att" gmail.com eða í síma 695 5415