10 September 2010

Kæru foreldrar og iðkendur
Nú eru hlutirnir að farnir að gerast. Við erum búin að ráða yfirþjálfara og mun hann líka þjálfa 2. flokka. Við eigum þá eftir að ráða þjálfara á 2 flokka til viðbótar og það mun vonandi skýrast í byrjun næstu viku. Þar sem tímabilið hjá flestum félögum er að klárast þá verður yfirþjálfarinn ekki klár fyrr en eftir næstu helgi og í næstu viku mun verða ákveðið hver tekur hvaða flokk. Þess vegna höfum við fengið Jóhann Unnar (pabba Alexöndru) til að þjálfa 5.-6. flokk í næstu viku. Æfingatímarnir verða þessir:

Þriðjudagur
5. flokkur kl. 16:00-17:00
6. flokkur kl. 17:00-18:00

Fimmtudagur
6. flokkur kl. 15:30-16:30
5. flokkur kl. 16:30-17:30

Í lok vikunnar verða þessar breytingar tilkynntar ásamt nýrri æfingatöflu.

Takk fyrir þolinmæðina kæru foreldrar og iðkendur

Áfram Haukar
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttastjóri Hauka

4 comments:

Versa said...

Yesss Takk allir þarna við erum buin að biða ógeðslega lengi þannig yess taaaaaaaaaaaaakk

Anonymous said...

dagrún kemst ekki á æfingu á þriðjudag hún er í Tónó á sama tíma
kv Þórunn

Anonymous said...

Agnes mætir ekki í dag!

Magnea Dís said...

ég kemst ekki í dag :(