Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2010 fyrir börn fædd 1998-2008 með svipuðu sniði og áður. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og er óhætt að segja að börn og foreldrar hafi tekið þessu framtaki Hauka mjög vel, en um og yfir 500 börn hafa tekið þátt í starfi skólans á hverju sumri frá 2007.
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum. Allir kennarar skólans hafa mikla reynslu af þjálfun yngri barna.Boðið er upp á gæslu frá 08:00-09:00 á morgnanna, einnig er boðið upp á heitan hádegismat fyrir þá sem eru á námskeiði allan daginn. Þetta sumarið er gæslan innifalin í verði.
Skólinn er opinn fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitarmenn.
Þessi námskeið eru í boði sumarið 2010:
Íþróttaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (1998-2004)Námskeið fyrir hádegi allt sumariðNámskeið eftir hádegi og allan daginn 7. júní – 2. júlí og 3.- 20. ágústFjölbreytt íþrótta- og leikjanámskeið við allra hæfi, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna íþróttaiðkendur. Skipt er í hópa eftir aldri, getu og vinatengslum svo að allir fái að njóta sín. Öðru hverju er dagskráin brotin upp og farið í sundferð, gönguferð, hjólatúr o.s.frv. sem verður þá auglýst með góðum fyrirvara.Fótboltaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (1998-2004)Námskeið fyrir hádegi allt sumariðFótboltaskóli Hauka verður starfræktur aftur þetta sumarið. Fjölbreyttar æfingar fyrir þá sem vilja vera í fótbolta meira og minna allan daginn. Reynslumiklir leiðbeinendur fara fyrir námskeiðinu.
10 May 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment