02 April 2007

Aukaæfing

Á miðvikudaginn 4. apríl verður í boði aukaæfing fyrir 8 stelpur kl. 12:00 á Ásvöllum. Fyrstu 8 stelpurnar sem staðfesta mætingu á þessa æfingu með því að skrifa nafn sitt í athugasemdirnar hafa tryggt sér pláss á æfinguna. Þetta verður ekki síðasta aukaæfingin sem ég býð upp á, svo þið hinar sem missið af þessu núna munið fá önnur tækifæri seinna.

Ég tek það fram að ég hef BARA áhuga á því að fá á þessa æfingu stelpur sem hafa mikinn áhuga á því að bæta sig í fótbolta og eru tilbúnar til þess að hlusta vel og vera mjög einbeittar á æfingunni. Með hvaða liðið (A, B eða C) þið hafið verið að spila með skiptir engu máli! Bara að þið séuð tilbúnar að hlusta vel og reyna að læra. Þær sem skrá sig á þessa æfingu en skrópa, gleyma æfingunni, komast "því miður ekki", eða mæta of seint - þær fá 100 punkta á sig. Ástæðan fyrir því er sú að ég er að gera þetta í mínum eigin frítíma og mun skipuleggja æfingarnar fyrir 8 stelpur - á þá verða auðvitað að vera 8 stelpur til staðar svo að æfingin gangi almennilega upp. Og svo nenni ég heldur ekki að eyða tímanum mínum í einhverja vitleysu. Æfingin mun taka cirka 60 mínútur.

Ég bendi ykkur á það að það er hægt sjá IP-tölu tölvunnar sem skrifar í athugasemdirnar, svo ef einhverjum brandarakellingum dytti í hug að skrá nafn einhverrar annnarar þá er hægt að rekja það til tölvunnar ykkar!!

9 comments:

Anonymous said...

Ég vil gjarnan koma.

Kveðja Ragnheiður Ragnarsd.

Anonymous said...

ég vil gjarnan koma

kv Sonja Björk

Anonymous said...

ég vil gjarnan koma

kv.Silja

Anonymous said...

hæ þetta er Silja...
ég var að spá ef einhver myndi ná að koma á þessa auka æfingu hvort hann myndi mega koma á næstu ef hann myndi ná?

Anonymous said...

Rebekka

Anonymous said...

Pott Þétt ég ;)


Kv Lára

Anonymous said...

ég vil koma
kv. Halldóra

Anonymous said...

ég ég ég ætla að koma

Anonymous said...

ég skal koma;)kv:Matthildur.